
Webster Tarpley verður seint sakaður um að vera fáfróður eða illa að sér í alþjóðamálum. Í nýlegri grein sem hann birtir á heimasíðu sinni, www.tarpley.net bendir hann á að árás á Íran sé sennilega á næsta leyti. Twitter byltingin hafi algjörlega mistekist og í kjölfarið hafi Brzezinski og félagar orðið undir eða skipt um skoðun. Hugmyndin að láta aðra sjá um skítverkin, sem gafst svo vel í Afganistan upp úr 1980 og 2001, virkar ekki á stjórn Ahmadinejad.
Til marks um þann þunga sem stríðsáróðurinn hefur fengið í Vestrænum fjölmiðlum er t.d. frétt í dag um fyrirhugaða aftöku á Íranskri konu fyrir hórdómsbrot. Ógeðslegt og allt það en varla boðleg sem ein af aðal erlendu fréttunum á RÚV. Í maí birtist einnig frétt um að sjálfur myrkarhöfðinginn, Osama bin Laden, væri staddur í Íran. Að sjálfsögðu í boði þarlendra stjórnvalda.
En það eru ekki bara neikvæðar fréttir um Íran sem birtast fyrir algjööra tilviljun í íslenskum fréttum. Robert Gates, varnamálaráðherra Bandaríkjanna, er farinn að tjá sig með ákveðnari hætti en áður. Í viðtali við Fox News sagði ráðherrann að stefna stjórnvalda væri ennþá að koma í veg fyrir að Íran yrði kjarnorkuveldi.
Í gegnum tíðina hafa bandarísk stjórnvöld verið á móti Íran vegna þess að þar ráði för öfgasinnaðir islamskir trúarleiðtogar. Núna er Íran slæmt vegna þess að það eru ekki íslamskir trúarleiðtogar sem ráða för heldur herinn. Eini þráðurinn sem heldur sér er viljinn til að fara í stríð og átök.
Ekki vantar heldur féttirnar af afdönkuðum prinsum og kóngum í Sádi Arabíu og öðrum álíka fyrirmyndaríkjum sem vilja að Bandríkin eða Ísrael bombi Íran. Samkvæmt því sem Jói littli(Joe Klein) hjá Time Magazine skrifar þá eru það ekki bara Ísrael sem óttast kjarnorkuvætt Íran heldur allir nágrannar þeirra líka. T.d. hafi sendiherra UAE nýlega heimtað að Bandaríkinn sprengdu Íran aftur í steinöld.
Stríðsæsingarblaðið, Der Spiegel, tekur undir þetta tal og vitnar í einhvern arabískan diplómat sem segir að utanríkisráðherra Ísraels, Avigdor Liebermann, og ráðamenn í Saudi Arabíu séu sammála um að bomba Íran í nafni lýðræðis og mannréttinda.
Fyrir þá sem hafa smá tíma aflögu má nálgast greinina hér.


Mynd: Luis Miguel Bugallo Sánchez 
hafidi paelt i iran nuna! Yemen naest!
Gott eða slæmt:
0
0
ja er tetta ekki bara timaspursmal, alltaf tegar marr gluggar sma i frettirna tha er verid ad tala um kjarnorkuhaettu fra iran eda nordur koreu :s
kannski osama se ad smida nokkrar sprengjur i einum af hellunum sinum tarna
Fuck the zioninsts!
Gott eða slæmt:
2
0