Andstæðingar ESB hata mannréttindi!

Á einhvern óskiljanlegan hátt fann ég grein eftir mbl bloggarann Kjartan Jónsson.  Kjartan hefur mikinn áhuga á ESB og öllu sem viðkemur bættum hag landsins.  Hann er einnig sérstakur áhugamaður um það sem satt og rétt reynist.  En gefum nú Kjartani orðið:

Evrópusambandið, sem er leiðindi í baráttunni fyrir mannréttindum fólks, hefur nú enn og aftur fordæmt helfarar afneitun Ahmadinejads í yfirlýsingu sinni. Mikilvægt er að slík ummæli séu fordæmd enda eru ummælin ósannindi og hatur af verstu tegund.

Bandaríkin hafa, ásamt Evrópusambandinu, verið dugleg við að berjast gegn stjórnræðinu í Íran. Fyrirlitning Ahmadinejad á Bandaríkjunum er öllum kunnug en einnig er hann harður andstæðingur ESB.

Helfarar afneitun er mjög þekkt fyrirbæri á meðal andstæðinga ESB. Ahmadinejad á það einnig sameiginlegt, með öðrum andstæðingum ESB, að gefa ekki mikið fyrir mannréttindi. Þegar á hann hallar þá beitir hann kúgun gegn pólitískum andstæðingum sínum og neitar að starfa samkvæmt mannréttindasáttmála Sameinuðu Þjóðanna.

Evrópusambandið hefur komið í veg fyrir að hatri Ahmadinejads sé dreift á Evrópskri grund m.a. með því að neita að veita honum friðhelgi diplómata í heimsóknum sínum til landa sambandsins.

Það er erfitt fyrir ESB að skipta sér með beinum hætti af stjórnarháttum í Íran. Tillögur hafa þó verið lagðar fram af Evrópuþingi um hvernig koma skuli harðstjórn Ahmadinejad frá völdum og hef ég fulla trú á að það takist á næstu árum.

Manni verður eiginlega bara orða vant eftir svona lestur.  Ekki nóg með að vera líkt við herra Ahmadinejad sem andstæðingur miðstýringar í Brussel heldur er ég á móti mannréttindum almennt.  Allir þeir sem ekki eru með ESB á heilanum og einhverjar fimm árar áætlanir um stærri og betri Evrópu eru nánast réttdræpir mannréttindahatarar!

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: , ,