![]()
Hún er heit, hún er dýr, hún boðar ný trúarbrögð og vætir hvarma bíógesta. Andseta, nýjasta kvikmynd Camerons er glitrandi, $400 milljóna perla sem markar upphaf endalokanna fyrir vísindin og boðar endurkomu heiðni í formi dýrkunar á gyðjunni Gaia, trúarbragða sem áttu sína bestu spretti á dögum Mayanna.
Frá sjónarhorni tækninnar er myndin völundarsmíð. Frábær tölvugrafík, fallegur heimur, ný manntegund byggð á goðsögninni um ‘göfuga villimanninn’ (1) . Þrívíddin er rómuð, en ég varð fyrir vonbrigðum. Kannski hefði verið betra að sjá myndina í 2d, þrívíddin var óþægileg á köflum, léttur höfuðverkur og þurr augu. Síðasta mynd sem ég sá í þrívídd var í IMAX bíói, þar var tæknin gríðarlega fín.
Í andsetu er hnykkt á nýrri hugmynd sem verið er að gera kunnuglega fyrir okkur. Að andi okkar geti setið aðra líkama. Það eru bara nokkrir mánuðir síðan ég sá myndina Fulltrúar, eða Surrogates, þar sem sama hugmynd var sýnd, nema þar var um andsetu vélrænna róbota að ræða.
Við fáum tvær langar senur sem sýna messu í Gaiatrúarbrögðunum. Í báðum tilfellum er gyðjunni færð mannfórn, í báðum tilfellum er fórnarlambið viljugt. Þessar senur minna mikið á hallærislega senu í síðustu Matrix myndinni þar sem fólkið í Síon, síonistarnir berja trumbur og dansa sveittir við flöktandi skímu kyndla.
Græna byltingin helst í hendur við Gaiatrúna. Bláa fólkið, göfugu villimennirnir lifa í sátt við umhverfið á sjálfbæran hátt og með virðingu fyrir náttúrunni, enda er móðir jörð gyðjan þeirra.
Kunnuglegt þema framtíðarmynda er til staðar þar sem allt mannkyn vinnur fyrir “fyrirtækið”, fyrirtækið eina. Fyrirtækið og herinn eru samtvinnuð, tveir armar á sama skrokk. Þar sameinast stefna hinna hugumstóru um algera skilvirkni – samkeppni er synd, einokun er málið, og svo samþjöppun valds yfir í eina heimsstjórn.

Dæmi um speglun, algeng ’tilviljun’ í táknmyndum fyrirtækja
Í trúarbrögðum hinna hugumstóru er speglun stórt númer. Svo á himni, sem á jörðu. As above, so below. Ekkert er gott eða illt, bara andstæður, andstæður í jafnvægi, spegilmyndir.
Á sama tíma og okkur er kynnt hugmyndin um andsetu ‘fulltrúa’, eða sálarlausra, ræktaðra líkama, þá speglast hugmyndin um að við getum verið andsetin. Margar athafnir dulspekitrúarbragða, svo sem frímúrara miða að því að opna gátt fyrir andsetu að handan. Sama má jafnvel segja um kristna trú, þar er hugtakið um heilagan anda og hinir trúuðu geta fyllst þessum anda og talað tungum eða andinn aðstoðað fólkið við að vinna góð verk (2).
Í göfgi villimannanna speglast ímynduð rányrkja okkar mannanna. Jake Sully segir við Gaiu: “Where the Sky People come from they have no green. They killed their Mother and will do that here too.” Mennirnir eru ósjálfbærir, þeir hafa drepið móður jörð og vilja líka ganga frá þessum nýja heimi. Í lok myndarinnar fara hinir sigruðu sneyptir um borð í skip sín til að “snúa tilbaka til sinna dauðu heimkynna”.
Villimennirnir búa í nokkrum þjóðflokkum, eða samböndum, en þeir virða allir lögmáli Gaiu. Líkt og Evrópusambandið og Ameríkubandalagið og Afríkubandalagið sameinast undir vængjum alþjóðastofnanna, þá sameinast villimennirnir á ögurstundu undir frelsaratákni þess sem getur tamið stærsta flugdrekann á plánetunni.
Í myndinni er hinn nýji heimur grimmur og byggður líkamlega sterkum dýrum og mannverum. Villimennirnir eru mun stærri og bein þeirra eru úr sterkum en sveigjanlegum koltrefjum. Mennirnir hafa hinsvegar yfirburða tækni og vopn. Það er speglun á annarri Hollywood minningu sem gróðursett hefur verið í huga okkar. Gráu geimverurnar eru litlar og líkamlega viðkvæmar en með yfirburða tækni.
Þetta er það sem ég man eftir í fljótu bragði, en myndin er löng og vafalaust hefur margt farið framhjá mér. Ég mæli með að sjá myndina en reyna að vera vakandi á meðan. Eins og Lindsay Williams, olíuverðs spámaðurinn mikli sagði nýlega, Elítan er að opinbera ýmislegt fyrir okkur búfénaðinum, og hún gerir það í gegn um Hollywood.
1) Göfugi villimaðurinn – þakka Hannesi Hólmsteini
2) Sjá frímúrara sem trúir að hann sé andsetinn: http://www.youtube.com/miklabraut2#p/f/2/XBjOs-egFMs

Nú berast fréttir af því að mikill fjöldi fólks finnur fyrir þunglyndiseinkennum eftir að hafa horft á myndina, raunveruleikinn grárri en nokkru sinni fyrr.
Svá góðr
0