Andrasistar ganga til andanna á tjörninni

Í dag er glatt hjá innflytjendum, flóttamönnum og hælisleitendum í Reykjanesbæ og víðar þegar þeir fagna fjölþjóðlegum degi og ganga fjölþjóðaskrúðgöngu frá Hallgrímskirkju niður að ráðhúsinu í dag klukkan 13.

Borgarstjóri setur hátíðina við Hallgrímskirkju í dag (14. maí 2011) klukkan 13.00. Að setningu lokinni fer fjölþjóðleg skrúðganga af stað og verður gengið frá Hallgrímskirkju niður að Ráðhúsi Reykjavíkur. Í kjölfarið verður svo haldin fjölþjóðleg hátíð í Ráðhúsinu þar sem boðið verður uppá fjölbreytta og lifandi skemmtidagskrá. Í Iðnó verður fjölþjóðlegur markaður þar sem kynntar verða vörur og handverk frá hinum ýmsu löndum.

Meðal atriða má nefna dansatriði frá Perú, Búlgaríu, og Thailandi. Auk þess mun barnakór frá Litháen syngja nokkur lög og Pólskur söng- og danshópur mun leika listir sínar. Fjölmenningardagurinn hefur öðlast fastan sess í hugum borgarbúa og er ávallt vel sóttur af íbúum. Enda gefst einstakt tækifæri til að sýna sig og sjá aðra og kynnast framandi menningu og matargerð.

 Hinir síkviku No Border menn ætla sko að vera með, og vekja upp rasistadrauginn í tilefni af deginum.

14.05.11

Í dag taka No Borders í Reykjavík taka þátt í fjölþjóðagöngu Reykjavíkurborgar. Við göngum með flóttamönnum sem dvelja í búðum í Reykjanesbæ. Við tökum þátt til þess að sýna samstöðu með Mehdi Poor og krefjumst þess að hann verði látinn laus úr gæsluvarðhaldi. Einnig viljum við vekja athygli á stöðu flóttamanna almennt.

Við beinum því til annarra and-rasista að þó það sé í sjálfu sér gott og gillt að vekja áhuga á menningarlegri fjölbreytni samfélagsins er sú umræða orðin stöðnuð fyrir all löngu síðan og tími til kominn að líta fram á veginn. Meðan samfélag fjölmenningarsinna slítur sig ekki út úr þjóðernishyggju og aðskilnaði innbyrðis er vonlaust að ætla öðrum að gera það.

Við krefjumst þess að Ísland segi sig frá Dyflinarsamkomulaginu, að búðir flóttamanna verði fluttar til Reykjavíkur og að allir flóttamenn sem sitja í íslenskum fangelsum fyrir að ferðast á fölsuðum vegabréfum verði látnir lausir.

Engar þjóðir – engin landamæri.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments