Alvarlegt glæpamál á laugardagsmorgni

Lögreglan hefur lokað af götu við gróinn göngustíg í Reykjanesbæ.  Við hús við enda götunnar er bíll með opnar hurðir og gulir plastborðar lögreglunnar teygja sig inn á útivistarsvæðið bak við húsið, í nokkur hundruð metra  geisla.  Lögreglumenn eru á verði og vísa fólki frá.

Blaðamaður Kryppu talaði við tvo lögreglumenn sem gættu sitthvors enda rannsóknarsvæðisins, en þeir gátu ekki sagt hvað gerst hefði.  Annar sagði þó að verið væri að rannsaka “mjög alvarlega glæpi.”

Bjarnavellir eru fyrir miðri þessari mynd.  Rannsóknin virtist beinast að húsinu næst græna svæðinu, númer 10, eða ef til vill húsinu við hliðina.

Nýtt (11:00): Vísir greinir frá því að maður hafi fundist látinn fyrir utan hús í Keflavík, og að talið sé að andlát hans hafi ekki borið að með eðlilegum hætti.

Myndir: Gullvagninn
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments