Alræði lögleitt í Bandaríkjunum
31. desember 2011 í skjóli áramótafagnaðar og fyllerís samþykkti Obama Bandaríkjaforseti lög sem heita National Defense Authorization Act (NDAA) sem brjóta stjórnarskrá Bandaríkjana all svakalega. Þessi lög eru upphaflega samin til að berjast gegn Al-qaeda en “óvart” er verið að lögleiða alræði yfir fólkinu í landinu. Lögin leyfa Bandarískri lögreglu að handtaka almennan borgara án dóms eða rökstudds gruns, án þess að fá lögfræðing til aðstoðar og ofan á það í óendanlegan tíma. Þessi lög eru samin og samþykkt til að gíra Bandaríkin upp fyrir hina nýju heimsmynd sem verður reynt að búa til í kjölfar stríðs við Íran og alvarlegs efnahagshruns þegar dollarinn fellur niður í klósettpappír sennilega þegar Kína selur ríkisskuldabréf þar sem stór hluti olíunnar sem framleidd er í Íran er seld til Kína og Rússlands. Líklegt er að það verði ekki byrjað að nota lögin að fullu, byrjað verður að handtaka vafasama Bandaríska ríkisborgara eins og Al Awlaki og senda í FEMA fangabúðirnar sem eru víðsvegar um Bandaríkin.
Bandarískur almenningur er að vakna af værum svefni og komast að því að landið sem þeir búa í er að breytast í alræðisríki, vegna þess hefur byssusala rokið upp (3 milljónir vopna í desember) þar sem margir Bandaríkjamenn eru farnir að hafa áhyggjur af efnahagshruninu og glundurroða tengt því.
Þrátt fyrir að þessi afleitu lög hafi verið samþykkt þá kemur fram í dómsmáli árið 1803 þar sem Marbury og Madisonvoru í málaferlum, út úr þeim málaferlum sagði dómarinn:
Thus, Marshall concluded that congressional legislation contrary to the federal Constitution is null and void and cannot be enforced by a court of law.
Lyklar:alræði, Bilderberg, nwo









