
AIM Global hefur séð þörfina fyrir gríðarlega kynningarherferð til að gera viðhorf almennings jákvæðari gagnvart RFID auðkenningu. Það er að segja, þeir sáu það fyrir nokkrum árum, því þetta er frá 2007, en samt skemmtilegt efni, RFID, eða flagan.
RFID merki eru þegar útbreidd og verða arftakar strikamerkja. Hægt er að lesa þau með rafsegulörvun og þá gefa þau frá sér tölu sem notuð er sem lykill að gagnagrunni. Dæmi eru vinsælir bensínstöðvalyklar, þeir virkja dælur bensínstöðva þegar þeir eru bornir upp að lesara.
Þessi merki eru mun víðar, til dæmis á öllum debit og kreditkortum og margir auðhringir eru þegar farnir að merkja vörur sínar með RFID merkjum, enda munu þessi merki væntanlega koma í stað strikamerkja innan skamms.
Dýr eru ‘örmerkt’ – það er að segja, RFID flögu er skotið inn fyrir holdið og hægt er að lesa af merkinu með því að bera lesara upp að dýrinu. Þetta hefur einnig verið gert við fólk, Verichip hét fyrirtækið lengi vel, en nú heitir það Digital Angel, sá stafræni skratti.
Hér fyrir neðan er stuttur bútur af útvarpsþætti Alan Watt, þar sem hann les fréttatilkynningu frá AIM Global, og skýrir hana, skýrir hvernig hún er orðuð til að forrita lesandann með leiðandi orðum, þægilegum orðum yfir óþægilega hluti. Þessir menn gætu selt fólki vist í Dachau útrýmingarbúðunum, segir Alan Watt. Þeir kunna að nota orðin til að stýra hugsun okkar.
Alan skýrir einnig snilldarlega merki AIM Gloabl. Hann segir: “Merki þeirra skartar þrem píramíðum, hér er aftur vísun í belti Óríons. Í miðjunni er bautasteinn, það er I-ið í AIM, og sólin er fyrir ofan hann, en það er í raun Satúrnus í dulargerfi, það sést á lykkjunni, sigðinni, Krónos Satúrnus.
Opnið þennan hlekk til að hafa frumtextann og hlustið svo á Alan Watt lesa og skýra þau skilaboð sem falin eru í textanum í youtube hljóðskránni hér að neðan.
CC mynd: Wammes Waggel

Takk, ætla að tékka á þessu.
Svá góðr
2