Smiley face
dd395-TSA

Allir sekir, þú líka!!

Höfundur bjorn þann . Flokkur Hin nýja heimsmynd, Lögregluríkið, Stóri bróðir

Kona nokkur frá bandaríska heimsveldinu lenti í “ítarlegri öryggisleit” í boði TSA og bandarískra stjórnvalda í Leifsstöð.  Aumingja konan sem aldrei hefur fengið svo mikið sem stöðumælasekt var ekki skemmt.  Hún mátti hýrast í gluggalausu herbergi í 3 tíma og þurfti að svara spurningum.  Pressan.is vekur athygli á málinu og við heimkomuna klagaðu hún Ísland í þingmanninn, Heimavarnarráðuneytið og flugfélagið sitt.

Samkvæmt íslenskum yfirvöldum þá var þessi framkoma í boði TSA en ekki á vegum íslenskra stjórnvalda.  Til að mega fljúga til USA þurfi að fara eftir þeim reglum sem þaðan koma.  Við hér á Kryppunni þekkjum svona framkomu þar sem allir eru glæpamenn nema annað sé tekið fram afar vel.  En þetta er hin nýja heimsmynd Rockafeller og Rothschild bankamafíunar.

Sá vinkill sem Pressan skoðar ekki nánar er af hverju þessi konu fékk svona 5 stjörnu terroristayfirheyrslu.  Eina vísbendingin sem ég sá var að maðurinn hennar er sérfræðingur á miðjum aldri.  Svo getur líka alltaf verið að hún hafi verið gift bin Laden án þess að vita það:)

http://www.pressan.is/Frettir/LesaFrett/bandarisk-kona-i-leifsstod-komu-fram-vid-mig-eins-og-glaepamann—onnur-gret-undan-areiti

 

 

 

Lyklar:,

bjorn

Er launamaður og áhugamaður um mat og fjallgöngur niður brekku.

Skrípó