Alþjóðlegar typpamælingar

Sumir segja að stærðin skipti ekki máli en alþjóðleg flugmálayfirvöld eru þessari fullyrðingu algjörlega ósammála.  Sem svar við nýlegri rannsókn sem sýndi að flugvél full að köllum með stór typpi ætti síður hættu á að vera sprengd í loft upp af hryðjuverkamönnum.  Hafa yfirvöld sett upp typpaskanna í flugstöðvum.

Vegna tæknilegra vandræða hefur uppsettning tafist í Evrópu en er langt á veg komin í Bandaríkjunum.  Einnig hafa vísindamenn tengdir verkefninu ekki komið sér saman um við hvaða stærð skuli miða.  Í viðtali við DV sagði Guðrún Ýrr, markaðsstjóri Nortek og umboðsaðili typpaskannans á Íslandi, að þetta væri framtíðin.  Tækið gæti janvel hjálpað konum að finna rétta makann.

Mannréttindasamtök hafa réttilega bent á þá opinberu niðurlægingu sem karlmenn með lítið typpi fá út úr þessu aukna öryggisferli.  Að vera hafnað fyrir framan fjölskyldu og vini vegna typpastærðar kunni að hafa varanleg áhrif á líf viðkomandi.

Svar flugmálayfirvalda er að mikill meirihluti karlmanna fái að stíga um borð í flugvélar áfram og þetta dragi stórlega úr hættu á hryðjuverkum.  Eitthvað sem þeir karlmenn sem ekki komast um borð en vilja tryggja öryggi barna sinna ættu að kunna að meta.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments