47 þjóða þingnefnd ESB sem samanstendur af lýðræðislega kjörnum þingfulltrúum hefur hafið rannsókn á því hvort Svínaflensufárið hafi verið ‘falsað’, eða ýkt í þeim tilgangi að auka hagnað af sölu bóluefnisins.
Nefndinni stjórnar Dr. Wolfgang Wodarg, fyrrum meðlimur löggjafarþings Þýskalands, læknir og farsóttarfræðingur. Wolfgang hefur sagt svínaflensufárið vera eitt stærsta læknisfræðilega hneyksli aldarinnar.
Nefndin mun væntanlega rannsaka hvers vegna WHO breytti skilgreiningu sinni á heimsfaraldri, enda hefði Svínaflensan ekki talist heimsfaraldur samkvæmt fyrri skilgreiningu og einnig sterk hagsmunatengsl margra ráðgjafa WHO við sömu lyfjaframleiðendur og framleiða H1N1 bóluefnið, GlaxoSmithKline, Roche og Novartis.
Lyfjafyrirtækin eru talin hafa hagnast um 7,5 til 10 milljarða dollara á sölu H1N1 bóluefnisins. Fjöldi þeirra sem látist hafa úr H1N1 er talinn kringum 13.500 á heimsvísu, en það er rétt rúmur þriðjungur af þeim fjölda sem deyr árlega úr venjulegri flensu í Bandaríkjunum einum.
Nefndin telur að þetta meinta samsæri hafi sett milljónir heilbrigðra einstaklinga í hættu af aukaverkunum af lítið prófuðum bóluefnum.
Mörg lönd eru að losa sig við stórfelldar birgðir af ónotuðu bóluefni og afpanta það efni sem ekki hefur verið afhent. Þar á meðal er Grikkland, þar sem ríkisstjórnin hafði áður tilkynnt að allir yrðu skyldaðir til að láta bólusetja sig.
Á Íslandi kveður við annan söng. Hér lýsir þing heilbrigðisstarfsmanna áhyggjum yfir því fólki sem ‘sleppur’ í gegn um net áróðurs og reglugerða. Sjá frétt Stöðvar 2, 19.1.2010.

Comments
Powered by Facebook Comments