AK-47 bólubyssan vinsæl

Þessi grínteikning varð til út frá hugmyndinni um að bólusetningar séu “skot” sem í vaxandi mæli er þvingað upp á börn og unglinga.
Stundum er þessum bólusetningum framfylgt með byssukjafti eða með föntum og grimmum varðhundum, líkt og í Maryland fyrir tveim árum síðan, þegar dómari kvað á um að þúsundir foreldra skuli láta bólusetja börn sín, eða verða ella sóttir af vopnuðum föntum og eiga fangelsun á hættu.
Flest nútíma bóluefni eru auðvitað ekkert annað en efnaárásir á börnin. Ef þau væru framleidd án hættulegra aukaefna, svo sem thimerosal /kvikasilfurs og ‘skveilín’ hjálparefna sem eru skaðleg taugakerfinu, þá gætu þau verið hættuminni. En allt of mörg nútíma bóluefni eru sendingar, magnaðar upp með fjandans krafti, sem eru framandi og skaðlegar líkama okkar. Að neyða þeim í líkama saklausra barna er læknisfræðilegt ofbeldi.
Sú aðferð sem notuð er til að koma bóluefninu í börn í Bandaríkjunum er gerræðisleg forræðishyggja. Þessi efni og DNA / RNA leyfar er sprautað beint inn í líkamann, framhjá skinninu sem er náttúruleg vörn og einnig framhjá meltingarkerfinu, sem ver okkur líka gegn framandi og skaðlegum efnum. Bólusetning sem neydd er upp á börn og foreldra, sturtar framandi efnum beint inn í blóðrásina án samþykkis foreldra eða barna.
Það gerir nauðabólusetningar að efnafræðilegu ofbeldi gegn börnum.
Tryllti læknirinn
Læknirinn í þessari spémynd var viljandi teiknaður sem trylltur “brjálaður vísindamaður” því ekkert umsnýr venjulegum og rólegum heimilislækni yfir í froðufellandi öfgamann heldur en málflutningur gegn bóluefnum. Þó hann kunni að vera viðræðuhæfur um öll önnur mál, þá ferð þú yfir strikið þegar þú ögrar þeirri heilögu kú að börn eigi að bólusetja. Þá fýkur öll skynsemi út um gluggan og hann bólgnar út í tunglóðan brjálæðing sem hefur kvatt öll vísindaleg rök og er fullkomlega á valdi tilfinninganna.
Það skiptir hann engu þó engin vísindaleg gögn séu til sem styðji fullyrðingar um öryggi og virkni bóluefnanna. Bólusetningar þurfa engin vísindaleg rök, segir hann. Því allir vita að þær virka!
Heilsuvörðurinn Mike Adams, sem skrifaði upprunalegu ensku útgáfuna af þessum pistli, hefur lofað 10.000 dollara verðlaunum fyrir að finna vísindalega rannsókn (study) sem sannar öryggi og virkni H1N1 (svínaflensu) bóluefnisins, en enginn hefur sótt þann pott.
Í stað þess að rífast hér í athugasemdakerfinu yfir því hvað þetta er allt vitlaust, þá bendir Gullvagninn vantrúarmönnum á að innleysa þennan pott, hér er tengill.
Lesið meira: http://www.naturalnews.com/028211_vaccines_Merck.html
Tengt: Þúsundir bólusettra dóu úr svínaflensu
Lyklar:heilbrigðisyfirvöld, Mike Adams, svínaflensa








