
Grein eftir Kevin Ryan sem er meðlimur í 11. september vinnuhóp Bloomington, birtist í Bloomington Herald-Times, 8.8.2010.
Við þurfum áfram að leita sannleikans um 11. sept
Á síðustu þrem árum hefur hópur áhyggjufulltra borgara í Bloomington unnið að því að lyfta vitund almennings um þörfina á því að sannleikurinn frá 11. september 2001 komi fram. Þetta fólk er stundum kallað “samsæriskenningasmiðir” af því að það trúir ekki á opinberu skýringuna á atburðunum. En þegar fólk kemst yfir sín fyrstu viðbrögð við spurningum um 11. september, þá getur það orðið margs vísara.
Til að byrja með, þá skiljum við öll að skilgreiningin á orðinu samsæri er leynileg áætlun meðal tveggja eða fleiri manna til að framkvæma glæp. En í tilfinningastormi atburða eins og 11. september, þá láta margir eins og skilgreining orðsins hafi breyst.
Það er því ljóst að á bak við 11. september 2001 var samsæri, nema að þú haldir að þeir glæpir hafi verið framdir og skipulagðir af einum manni. En skilningi fólks hefur verið breytt þannig að það telur þýðingu orðsins vera aðeins þröngt svið samsæra, sem framin eru af valdamiklum mönnum, eins og fulltrúum stjórnvalda.
Fyrir þeim sem endurskilgreina orðið á þennan hátt, þá getur al-Qaida ekki tekið þátt í samsæri, og fyrir þeim eru samsæri meðal valdamikils fólks óraunhæf. Okkur er því ætlað að skilja samsæri sem óraunhæf með öllu, þrátt fyrir þá staðreynd að fréttir okkar og lagabálkar fjalli mikið um samsæri.
Að auki verðum við til að samþykkja þessa endurskilgreiningu á orðinu, að hunsa fjölmörg dæmi um leynilegar áætlanir valdamikilla bandarískra ríkisstofnana sem eru glæpsamlegar, svo sem Northwoods aðgerðin, Gladio aðgerðin og atvikið á Tonkinflóa, en þetta eru allt dæmi um óvéfengjanlegar staðreyndir sem nú eru opinberar.
Margir þeir sem aðhyllast opinberu skýringuna hampa kenningu sem kallast “bakskot”. Þessi kenning leggur út frá því að ákveðið fólk í Miðausturlöndum, sem hefur þolað sprengiregn og viðskiptahömlur í áraraðir hafi græjað úrræði til að ráðst til baka með hefnigjörnum aðgerðum sem samanstanda af annars órökréttu ofbeldi, með því að ráðast á tákn vestrænnar auðlegðar og vala.
Það má furðu sæta að fylgjendur þessarar kenningar halda í hana af miklilli seiglu en fást aldrei til að íhuga örlítið breytta útgáfu af kenningunni, sem nefnist ”stýrða bakskotið”. Þeir fást ekki til að trúa því að valdamikið fólk gæti tekið eftir og ráðskast með, eða nýtt sér, slíkar þreifingar til hefnda og stýrt þeim að sínum markmiðum.
Til að gleypa við baksotskenningunni þarf fólk einnig að hunsa þá staðreynd að hinar síbreytilegu opinberu skýringar á atburðunum 11. september 2001 voru afurðir fulltrúa Búsh stjórnarinnar, sem hefur langa sögu um leynimakk og óheiðarleika.
Ef fólk trúir á bakskotskenninguna sem einu skýringu atburðanna, þá þarf það einnig að hunsa þá staðreynd að mestallar loftvarnir innanlands í Bandaríkjunum voru í lamasessi í nánast tvo klukkutíma á þessum morgni, að innherjaviðskipti áttu sér stað (án nokkurra innherja) og að þrjár byggingar féllu niður á ólíklegasta hátt (í gegn um sjálfar sig, en ekki til hliðar), þegar slík hrun hafa aldrei átt sé stað fyrr né síðar. Og þá er eftir öll umræða um vísindagreinar sem fjalla um leyfar sprengiefnis í ryki úr byggingunum.
Það eru án efa stórfelldar sálfræðilegar hömlur á skilningi okkar á atburðunum 11. september og viðbrögð almennings bæði við opinberu og oðrum skýringum ber þess merki. Að skilja þessar hindranir gæti hjálpað við að afhjúpa sannleikann og þá í leiðinni hryðjuverk og þau stríð sem tengjast þeim.
Með þetta í huga eru margir sérfræðingar að krefjast nýrrar rannsóknar á atburðunum 11. september 2001. Þar á meðal eru meira en 1200 löggildir arkitektar og verkfræðingar og svo aðrir hópar, svo sem trúarleiðtogar, slökkviliðsmenn, lögmenn, heilbrigðisstarfsmenn, vísindamenn og starfsmenn njósnastofnana.

Það er fyndið hvað milkið af fólki er enn undir dáleiðslu main media.
Þrátt fyrir að sagan er sögð i 1996 US dollurum, þar erum við ekki að tala um eina brauðsneið, heldur sjö sneiðar. Þetta er bara eitt af mörgu. Mikð um hint úr Hollywood myndunum. Þið þurfið að vera virkileg róbots að sjá þetta ekki..
http://thorthunder.blog.is/blog/thorthunder/image/944761/
Svá góðr
1
Þið ættuð að skrifa við tækifæri um Gladio, Northwoods og Tonkin
Heit umræða. Hvað finnst þér?
8