Þó “heimsveldi neyslunnar” hafi lengi verið í blóma þá hefur daglegt líf bandarískra [og íslenskra] barna umbreyst gríðarlega á síðustu þrjátíu árum, frá menningu sem einkennist af sakleysi og samfélagslegri vernd yfir í neyslumenningu. Ungviðið situr undir stöðugu áhlaupi markaðsherferða og markaðsmanna sem nema land í vitund og daglegu lífi barnanna. Undir handleiðslu Disney og annarra risafyrirtækja eru börnin í áhorfsgíslingu ekki aðeins í hefðbundnum miðlum, svo sem kvikmyndum, sjónvarpi og prentmiðlum, heldur einnig og jafnvel í meira mæli á hinum nýju stafrænu miðlum sem eru aðgengilegir um farsíma og tölvur í gegn um internetið.
Þær upplýsingar, skemmtun og uppeldisfræði sem risafjölmiðlasamsteypurnar dreifa eru orðnar einn helsti áhrifavaldur í mótun æskunnar og stuðlar að ævilangri og gagnrýnilausrar neysluhyggju. Neyslumenning í Bandaríkjunum og í vaxandi mæli um allan heim, gerir meira en að grafa undan hugsjóninni um örugga og hamingjusama æsku, hún stuðlar að þeirri hugmynd að fyrir börn sé aðeins um eitt gildi að ræða; markaðsgildið, ein tegund velgengni; hagnaður, ein tegund tilveru, að komast yfir vörur og ein tegund félagslegra tengsla; markaðir.
Töfrar Disney og stórstraumsfjölmiðla móta sjálfsmynd ungviðisins á stafrænni öld
Mynd CC: Jared Rodriguez / t r u t h o u t
Comments
Powered by Facebook Comments