Eftir Webster Griffin Tarpley, Ph.D.
Washington DC, 24. september 2009
Það er ekki rétt að líta á íslensku bankakreppuna sem einangraðan atburð, heldur fremur sem hluta af nýrri efnahagskreppu í heiminum sem er svo alvarleg að ekki eru fordæmi fyrir. Fall íslensku krónunnar ásamt greiðsluþroti stóru bankanna þriggja, Kaupþings, Landsbanka og Glitnis, er aðeins hægt að skilja sem hliðarverkun af afleiðuóðagotinu frá 2007 til 2009, sem hratt af stað gjaldþrotum nánast alls ensk-bandaríska bankakerfisins, þar á meðal stórar stofnanir eins og Contrywide, Northern Rock, IndyMac, Bear Sterns, Lehman bærður, Citigroup, Merrill Lynch, Washington Mutual, AIG, Royal Bank of Scotland, Lloyds Bank og svo margar aðrar. Margar miðstöðvar bandarískrar bankaviðskipta eru gjaldþrota nú þegar (þá kalla ég bankauppvakninga – Zombie Bank) og þeim er haldið á floti með opinberu stefnumörkuninni “of stórir til að mega falla”, en sú stefna er brot á alríkislögum. Eins og sagt er, það sést ekki hverjir synda naktir fyrr en fjarar út. Oft kemst einmitt upp um stórvirka fjárdráttarmenn í hita fjárhagslegra hörmunga, og það er einmitt það sem gerðist á Íslandi.
Þetta er upphafið að langri grein Websters G. Tarpley, sem hann skrifaði í tilefni af heimsókn sinni til Íslands í enda september og byrjun október 2009. Út frá þessari grein hélt hann svo samnefndan fyrirlestur í Reykjavíkurakademíunni þann 28. september.
Upptaka frá þeim fyrirlestri er aðgengileg fyrir lesendur hér að neðan:
![]()
Myndir: Tarpley í Reykjavík
Við höfum ekki enn tekið til og lagfært, en hér er gott veganesti í þá ferð
Comments
Powered by Facebook Comments