
Fólk er í uppnámi yfir þessu, og hefur ástæðu til. Stúlkum á vöggualdri sem hafa fengið formúlumjólk að drekka eru farin að vaxa brjóst!
Samkvæmt Chinese Daily dagblaðinu er mettun kvenhormóna í blóði barnanna jafn mikil og hjá flestum fullorðnum konum. Þessi börn eru milli fjögurra og 15 mánaða gömul og líkurnar eru yfirgnæfandi að mjólkurformúlunni sé um að kenna.
Framleiðandi formúlunnar segist saklaus og bendir á að mjólkin sem þeir nota sé framleidd af hormónakúm, en Kínverjar eru síst latari en Bandaríkjamenn við að túrbó trekkja kýr sínar með nautslegum vaxtarhormónum til að hámarka framleiðsluna án þess að spá of mikið í áhrif á neytendur.
Er þetta tilviljun sem verður kippt í lag í kvelli? Það væri einfeldningslegt að halda það. Neysla unnina matvæla frá auðhringjunum eru öruggasta leiðin til að sigrast á ímynduðu fólksfjölgunarvandamáli heimsins, á eigin kostnað.
En nei, þessu verður ekki kippt í lag, bara dregið úr hormónatúrbóinu þannig að gelgjuskeiðið hefjist aðeins seinna hjá stelpum. Monsanto, efnaframleiðandinn illræmdi sem færði okkur kúahormónin, aspartam, agent orange og erfðabreyttar fóðurplöntur, svo það helsta sé nefnt, er þegar í baráttugírnum til að tryggja að vörum sem innihalda mjólkurafurðir úr hormónakúm verði ekki “mismunað” með því til dæmis að merkja vörur sérstaklega sem lausar eru við vaxtarhormónana.
PS: Man einhver eftir melamín málinu?
Female Infants Growing Breasts: Another Disaster From Hormones in Milk Production

Comments
Powered by Facebook Comments