
Sjö lexíur kennarans
eftir John Taylor Gatto
Kennari ársins í New York ríki, árið 1991
Gerðu svo vel að kalla mig herra Gatto. Fyrir tuttugu og sex árum, þegar ég hafði ekkert betra að gera, þá reyndi ég mig við kennslustörf. Leyfisbréfið sem ég hef staðfestir að ég sé kennari í ensku og enskum bókmenntum, en það er alls ekki það sem ég kenni. Ég kenni ekki ensku, ég kenni skóla — og ég fæ viðurkenningu fyrir það.
Kennsla hefur mismunandi merkingu á mismunandi svæðum, en sjö lexíur eru allsstaðar kenndar, frá Harlem til Hollywoodhæða. Þær eru námsefnið um allt land og þú borgar fyrir það á fleiri vegu en þú getur ímyndað þér, svo þú mátt víst alveg eins vita hvað það er. Þér er auðvitað heimilt að hafa þína skoðun á þessum lexíum, en trúðu mér, ég er ekki að reyna að vera kaldhæðinn með þessum skrifum. Þetta eru þær lexíur sem ég kenni, þetta er það sem þú borgar mér fyrir að kenna. Skildu það eins og þú vilt.
1. RUGLINGUR
Kona að nafni Kathy skrifaði mér frá Dubois í Indiana fylki um daginn:
“Hvaða stóru hugmyndir eru mikilvægar fyrir lítil börn? Ég held að stærsta hugmyndin sem þau þurfa að fá sé að það sem þau læri sé ekki handahófskennt — að það sé eitthvað kerfi á upplýsingunum og þær rigni ekki bara yfir þau þar sem þau reyna í örvæntingu að drekka þær í sig. Það er verkefnið, að skilja, að koma samhenginu til skila.”
Það er rangt hjá Kathy. Fyrsta lexían sem ég kenni er ruglingur. Allt sem ég kenni er úr samhengi. Ég kenni þeim hvernig ekkert tengist. Ég kenni að slíta úr samhengi. Ég kenni of mikið: Sporbauga pláneta, lögmál stórra talna, þrælahald, lýsingarorð, teikningar arkitekta, dans, leikfimi, kórsöng, samkomur, óvænta gesti, eldvarnir, forritunarmál, foreldrakvöld, starfsdaga, þemadaga, umgengni við ókunnuga sem nemendur mínir munu sennilega aldrei aftur sjá, stöðluð próf, aldursaðgreiningu sem hvergi þekkist annarsstaðar… Hvernig tengjast þessi atriði hvert öðru?
Jafnvel í bestu skólum leiðir nákvæm athugun á námsefninu og röð þess í ljós skort á samhengi og fullt af mótsögnum. Sem betur fer hafa börnin engan orðaforða til að lýsa því fáti og reiði sem þau finna fyrir vegna sífeldra árekstra við eðlilega röðun sem svikin eru inn á þau sem gæði í menntun þeirra. Röksemdir skólaheilans eru að betra sé að útskrifast úr skóla með ýmsa grunnfrasa úr hagfræði, félagsfræði, náttúruvísindum og svo framvegis, heldur en að útskrifast með eldmóð í hjarta. En gæði í menntun felast í djúpum skilningi á einhverju máli. Ruglingi er troðið upp á krakka af of mörgu, ókunnugu fullorðnu fólki, sem hvert um sig vinnur í eigin heimi með aðeins yfirborðsleg samskipti við hina, og eru oftast aðeins að þykjast hafa einhverja sérþekkingu á sviðum sem þeir ekki hafa.
Það er tilgangurinn, en ekki ótengdar staðreyndir, sem heilbrigðir menn leita að, og menntun er safn aðferða til að finna merkingu úr hráum staðreyndum. Handan bútasaumsblæju skólastarfs og þráhyggju skólanna við að stagla staðreyndir og kenningar, þar liggur aldagömul leit mannsins að tilgangi, vel falin. Það er erfiðara að sjá í grunnskólum, þar sem stígandi námsins virðist hafa meiri merkingu vegna góðlegra og einfaldra samskipta kennara og barna, þar sem “nú skulum við gera þetta” eða “nú skulum við gera hitt” er talið hafa einhverja merkingu og skjólstæðingarnir hafa ekki enn meðvitað áttað sig á því hve lítið innihald er á bak við leiksýningu og uppgerð kennarans.
Skoðið hin stórkostlegu náttúrulegu lærdómsferli eins og þegar börn læra að ganga og tala, eða að fylgjast með ferli ljóssins frá sólarupprás til sólarlags; forna verkferla bænda, smiða og skóara, að fylgjast með mömmu undirbúa jólamatinn — allir hlutar þessara ferla eru í fullkomnu samræmi við hvern annan, hver aðgerð er réttlætt og varpar ljósi á fortíð og framtíð.
Ferlar í skólastarfi eru ekki þannig gerðir, ekki innan bekkja eða innan stundaskrár dagsins. Ferlar skólastarfsins eru galnir. Það er enginn sérstök ástæða fyrir neinum þeirra, ekkert sem þolir nána athugun. Fáir kennnarar myndu dirfast að kenna þá hæfni sem gerði nemendum kleyft að gagnrýna skóla eða kennara, því nemandinn verður að samþykkja allt hrátt. Námsefni er lært, ef hægt er, á sama hátt og ljóð eru lærð utanbókar.
Ég kenni samhengisleysi alls, óendanlega sundrun, andstæðu samloðunar; það líkist meira sjónvarpsefni heldur en að setja í röð og reglu. Í heimi þar sem heimilið er aðeins skuggi, vegna þess að báðir foreldrar vinna úti, eða fjölskyldan er alltaf að flytja, eða vegna of mikils metnaðar, eða vegna einhvers annars sem hefur gert alla of ráðvillta til að viðhalda eðlilegum fjölskyldutengslum, þar kenni ég ykkur hvernig þið sættið ykkur við hlutskipti ráðvillu og ruglings. Það er fyrsta lexían sem ég kenni.
http://www.wanderings.net/notebook/Main/SevenLessonsTaughtInSchool
Mynd CC Angel D
New is what you need
World is what you need
Order is what you need
Iceland is the need you whant
For ever
You need to whant´t
Svá góðr
2