
Flestir Bandaríkjamenn virðast hafa misst tiltrú á enn einni grunnstoð fjármála sinna: Almannatryggingunum.
Gallúp könnun á vegum USA TODAY sýnir að meirihluti (56%) núverandi lífeyrisþega telur að bætur þeirra muni skerðast. Það er gríðarleg fjölgun frá fyrri könnun. Metfjöldi fólks á vinnualdri, eða 6 af hverjum 10, telur að almannatryggingakerfið muni ekki geta greitt þeim lífeyri þegar þeir fara á eftirlaun.
Maya MacGuineas, foringi Nefndar um ábyrg ríkisfjármál, talar glaðlega um ástandið: “Það gerir okkur auðveldara að koma á þeim breytingum [e. change - munið slagorð Obama] sem ekki verða umflúnar.”
Tiltrú almennings á almannatryggingakerfinu hefur rýrnað gríðarlega frá árinu 2005. Prósentutala lífeyrisþega sem búast við niðurskurði hefur hækkað um 24 stig, jafnvel þó bætur þeirra hafi aldrei verið skertar áður. Á sama tíma hefur prósentutala þeirra sem búast ekki við að fá greiddan lífeyri sinn hækkað um 10 stig.
Poll: Faith in Social Security system tanking
Mynd: © Karla | Dreamstime.com
Comments
Powered by Facebook Comments