
Myndir: Fisker Automotive
Bandaríski rafbílaframleiðandinn Fisker Automative hefur gert samning við finnskan framleiðanda um samsetningu á fyrstu fjöldaframleiddu rafbílunum sínum, en við það skapast um 500 störf.
Fisker er í eigu ýmissa stórmenna og sjóða, þar á meðal er Al Gore friðarhöfðingi og grænfrontari. Það eru því engin undur að það hafi hlotið um 500 milljóna bandaríkjadala ríkisábyrgð á lánum, sem áttu að skapa bandarísk störf.
Henry Fisker sagði þann pening hafa farið í hönnun og framleiðslu frumgerða, en 40 bílar hafa verið handsmíðaðir til notkunar við markaðssetningu og til rannsókna, en tveir hafa þó verið seldir, þar af fór annar til Hollywood stjörnunnar Leonardo DiCaprio.
Eftirlitsöfl í Bandaríkjunum virðast nokkuð súr yfir því sem þau telja nokkuð frjálslega útdeilingu á almannafé til einkavinavæddra gælufyrirtækja í græna geiranum, en nýlega fór sólarselluframleiðandinn Solyndra á hausinn með látum, þar á meðal áhlaupi frá sérsveitinni, en fyrirtækið hafði fengið 325 milljónir frá ríkinu. Nú óttast þessir aðilar að Fisker og Tesla rafbílaframleiðendurnir séu svipuð dauðyfli sem ekki muni greiða skuldir sínar.
Það er heppilegt að þessi eftirlitsbatterí séu upptekin við svona smotterí, svo þau fari nú ekki að elta trilljónirnar (bandarískar – íslenskar billjónir) sem ríkið hefur dælt í afleiðuhítina og fást 100% örugglega ekki aftur, né skapar það nein störf eða ábata fyrir umhverfið.
En hvers vegna tók fyrirtækið þá pólitískt óþægilegu ákvörðun að semja við erlent fyrirtæki um samsetninguna frekar en að skapa störf í eigin landi? Forsetinn hefði svo sannarlega getað notað þessi 500 störf sem fjöður í hatt sinn, en upp á síðkastið hefur hann hætt að reyna að segjast ætla að “skapa x ný störf” og er farinn að tala um að “verja x mörg störf” frá því að vera lögð niður.
Ekki er það vegna ódýrara vinnuafls. Þá hefði fyrirtækið samið við kínverskt eða íslenskt fyrirtæki, ekki finnskt. Nei, Fisker Automative er vorkun, þeir komust að því að í öllum Bandaríkjunum hefur bara ekkert slíkt fyrirtæki lifað af kviðristu stjórnvalda sem hefur flutt framleiðslufyrirtæki til Kína og annara láglaunalanda með því að hreinlega borga fyrirtækjum styrki fyrir að fara út í þann kostnað að flytja framleiðsluþáttinn erlendis.
“There was no contract manufacturer in the U.S. that could actually produce our vehicle,” það fundust engir verktakar í Bandaríkjunum sem gátu raunverulega framleitt bifreiðina okkar, segir stofnandi og nafni fyrirtækisins.
Það er ljótt ástandið í Bandaríkjunum. Ekki nema 10 ár síðan þeir hönnuðu og fjöldaframleiddu sjálfir (GM) einn flottasta rafbíl sem sést hefur, EV1.


Sá nýjan South Park þátt í gær. Strákarnir léku Texas Ranger vs Mexikans. Fyrst reyndu Kyle og félagar að komast inní garðinn hjá Cartman i Mexíkanagervum. Síðar í þættinum snerist dæmið við og alvöru Mexíkanar forðuðu sér frá USA heim til Mexíkó. Drullu fyndið!
Svá góðr
0
http://abcnews.go.com/Blotter/car-company-us-loan-builds-cars-finland/story?id=14770875
http://www.iwatchnews.org/2011/10/20/7152/energys-risky-1-billion-bet-two-politically-connected-electric-car-builders