
Veröld okkar er að breytast með svo sláandi hraða að erfitt er að skilja merkingu þess sem við verðum vitni að. Vonandi hjálpar þessi listi af handahófskendum staðreyndum þér að tengja punktana og sjá grófa mynd af ástandinu.
Þér kunna að þykja þessar staðreyndir ótengdar, en á hinn bóginn þá eiga þær það sameiginlegt að sýna hve miklum grundvallarbreytingum Bandaríkin hafa tekið.
Þessi stórkostlegasta efnahagsvél sem sést hefur í heiminum er að hryngja í sundur fyrir framan nefið á okkur, og jafnvel þegar stjórnmálamenn reyna að gera eitthvað rétt (sem er afar sjaldgæft), þá endar það alltaf í tómu rugli.
Allur listinn er aðgengilegur í gegn um tengil hér að neðan, en hér eru nokkrar af handahófi úr þessum handahófslista.
#50) Ný skýrsla frá sameinuðu þjóðunum krefst þess að nýjum gjaldmiðill fyrir heimsviðskipti sé komið á en engin af stóru fréttastofunum fjallar um málið.
#48) Fyrir stuttu teisuðu lögreglumenn í Oklahoma 86-ára fatlaða ömmu sem lá í kör og stigu á súrefnisslöngu hennar þar til hún átti erfitt með að anda, vegna þess að þeim “stóð ógn” af henni.
#46) Corexit 9500 er svo hrikalega eitrað efni, að Sjávarlífsstofa í Bretlandi hefur algerlega bannað notkun þess, þannig að ef stór olíuleki yrði í Norðursjó, þá gæti BP ekki notað efnið. En þrátt fyrir það hefur BP sturtað meira en milljón gallónum af slíkum efnum í Mexíkóflóa.
#42) Sá tími sem einstaklingar í Bandaríkjunum eru atvinnulausir að meðaltali hefur aldrei verið lengri.
#41) Þau 40% launþega sem þiggja lægstu launin í Bandaríkjunum eiga nú til samans minna en 1 prósent af eignum þjóðarinnar.
#35) Fyrirtæki sem siglir með fólk í veitingaferðir frá Chicago fékk nærri 1 milljón dollara úr aðgerðapakka stjórnvalda gegn efnahagskulinu til að berjast gegn hryðjuverkum.
#30) Matvæla og lyfjastofnum (FDA) hefur tilkynnt að afkvæmi klónaðra dýra kunni að vera í hillum stórmarkaða og að það sé ekkert sem þeir geti gert við því.
#28) Árið 1950 fengu æðstu stjórnendur fyrirtækja um það bil 30 sinnum hærri laun en meðallaun verkamanna. Frá því árinu 2000 hefur þetta hlutfall verið milli 300 til 500 sinnum hærri laun.
#23) Sex stærstu bankarnir í Bandaríkjunum eiga eignir sem jafnast á við 60 prósent af landsframleiðslunni.
#17) Fréttir frá Florida herma að nær 40 prósent af öllu seldu húsnæði fyrri hluta þessa árs séu eignir sem teknar hafa verið af eigendum.
#15) Vísindamenn Columbia háskóla vara við því að geislun frá nektarskimunum kunni að vera allt að 20 sinnum hærri en áður var talið.
#5) 6 ára stúlka var nýlega handtekin og send á geðsjúkrahús eftir að hafa fengið frekjukast í skólanum sínum.
#4) Í Flóridafylki hafa nemendur verið handteknir af lögreglu fyrir smámuni eins og að koma með smjörhnífa úr plasti í skólann, kasta strokleðri í einhvern eða teikna mynd af byssu.
#2) Samkvæmt nýlegri könnun munu um 21 prósent barna í Bandaríkjunum búa neðan fátækramarka á árinu 2010.
50 Random Facts That Make You Wonder What In The World Has Happened To America
Mynd © Frenk And Danielle Kaufmann | Dreamstime.com
Comments
Powered by Facebook Comments