Stórfyrirtæki borga milljónir dollara til verkefna í almannatengslum svo að viðskiptavinir tengi vörumerki þeirra við hlýjar og ánægjulegar tilfinningar. Það er áríðandi að fela sálarlaust og í eðli sínu gráðugt eðli stórfyrirtækisins á bak við fjölskylduvæna framhlið. En sum fyrirtæki gefa bara skít í það. Þau hata þig og fjölskyldu þína og sérstaklega köttinn þinn, og þeim er alveg sama þó þú vitir það. Þessi fyrirtæki skarta meira að segja illsku sinni í merkjum sínum. Hér á eftir er listi Árvökula borgarans yfir 5 verstu merkin.
#5 – Alfa Romeo

Já, ég veit, þeir framleiða svaðaflotta evrópska bíla. En skoðaðu merkið vandlega. Af hverju er snákur að éta lítinn og skelfingu lostinn náunga á merkinu? Ég meina, ég er maður, ekki risastór snák-dreki. Svo sú staðreynd að það er snákur að éta persónu er óþægileg fyrir mig því hef tilhneygingu til að samsama mig við manninn, en ekki þennan risastóra krýnda snák. Ef við skoðum sögu þessa merkis, þá sýna eldri útgáfur manninn á enn meira áberandi hátt.

Í eldri útgáfum merkisins er litli maðurinn í öðrum lit, enn baðandi út öngum í að því virðist örvæntingafullu hrópi eftir hjálp
Opinbera saga merkisins er sú að Romano Catteno var falið að útbúa skilti fyrir fyrirtækið sem var þá nýstofnað árið 1910. Meðan hann beið eftir lest við Piazza Castello í Mílanó, þá fékk hann innblástur frá skjaldarmerki Visconti fjölskyldunnar sem hann sá á hurð. Það skartar “biscione”, sem er snákur að éta mannsbarn. Það mun hafa dauðhrætt almenning á Mílanósvæðinu á fyrri hluta 5. aldar. Það var sagt að manneskjan sem er verið að éta sé Mári, á tímum krossferðanna. Ef það er rétt, hvern eða hvað á þá snákurinn að tákna?

- Skjaldarmerki við aðalbrautarstöð Mílanó. Þessi ótuktarlegi ormur er að borða barn… eða er hann að fæða það? Gæti þetta táknað ættbogan?
Sumir dulspekihöfundar halda því fram að snákurinn tákni í raun kundalini (snák-shökruna) að éta efnishyggju mannsins, og tákni því dulspekilega innvígslu. Það er mögulegt. En hvers vegna skartar framflöt Berlosconis þessu tákni?

- Flötin framan við smáhýsi Sylvio Berlusconi skartar tákni orms að éta mann.
Fólkið á redicecreations.com hefur að því virðist fundið þetta tákn notað í ýmsum skjölum í sögunni, svo sem teikningum Azteka og rúnum gullgerðarmanna. Táknið virðist hafa tekið á sig skýra vísun til elítunnar nú til dags, vegna notkunar þess af hefðarfjölskyldum, risasamsteypum og jafnvel hálfeinræðisherrum eins og Berlusconi.
Fyrst við erum að ræða snáka sem éta fólk, hvers vegna er ég sífellt að rekast á list sem sýnir skriðdýr yfirbuga menn?

- Vigeland garði, Osló. Takið eftir hrollvekjandi fésinu.

- Vigeland garði, Osló. Hvað um styttu af mér að gefa einum af þessum ormum á lúðurinn?

- Waddesdon setur (eign Rothschild), Englandi
Kannski ég ætti að fá álit David Icke á málinu…
#4 – Vodafone – lesa
http://vigilantcitizen.com/?p=1160
Ætli flötin fyrir framan hús Silvios (ekkert y í nafninu hans) sé ekki líklega með snákamerkið af því að húsið hans er í nágrenni Mílanós?
Svá góðr
0
Opinberun Jóhannesar 12:
1
Og tákn mikið birtist á himni: Kona klædd sólinni og tunglið var undir fótum
hennar, og á höfði hennar var kóróna af tólf stjörnum.
2
Hún var þunguð, og hljóðaði í jóðsótt með hörðum hríðum.
3
Annað tákn birtist á himni: Mikill dreki rauður, er hafði sjö höfuð og tíu horn
og á höfðunum sjö ennisdjásn.
4
Með halanum dró hann þriðja hlutann af stjörnum himinsins og varpaði þeim
ofan á jörðina. Drekinn stóð frammi fyrir konunni, sem komin var að því að
fæða, til þess að gleypa barn hennar, þá er hún hefði fætt.
5
Hún fæddi son, sveinbarn, sem stjórna mun öllum þjóðum með járnsprota. Og
barn hennar var hrifið til Guðs, til hásætis hans.
Svá góðr
3