
Vísindarannsókn hefur leitt í ljós að kvittanir úr hraðbönkum, verslunum og bensínsstöðvum innihalda gríðarlegt magn bisphenol A (BPA) efnisins, sem vitað er að veldur krabbameini og ófrjósemi.
Steve Watson, Infowars.net, 3.8.2010
Gríðarlegt magn efnisins fundust á 40%, eða tveimur af hverjum fimm, af öllum kvittunum í Bandaríkjunum sem prentaðar eru á svokallaðan ‘thermal’ pappír. Það er sama kerfið og langflestar kassavélar og vísavélar á Íslandi nota. Rannsóknin var framkvæmd af stofnun án ágóða í Washington D.C. sem heitir Environmental Working Group.
Stofnuninn er á vegum Líffræðiskoru Háskólans í Missouri og er ein af helstu rannsóknarstofum heimsins.
Í sumum tilfellum var hreint BPA efni allt að 3% af heildarþyngd kvittana.
Rannsóknin sýndi einnig að eitrið flyst auðveldlega yfir á það sem kvittunin kemst í snertingu við, þar á meðal skinn þeirra sem handleika pappírinn.
Fyrri rannsóknir, þar á meðal ein nýleg á vegum Svissneskra vísindamanna, hafa sýnt að BPA getur smitast af kvittunum á skinn og komist svo djúpt niður að ekki er hægt að þvo það af og það getur jafnvel komist yfir í blóðstrauminn.
Rannsóknir benda einnig til að handsprittun auðveldar BPA að komast djúpt inn fyrir skinnið og einnig hafa rannsóknarmenn áhyggjur af því að BPA kunni að smitast í mat og komast inn í líkaman um meltingarveginn.
http://infowars.net/articles/august2010/030810BPA.htm
Mynd CC diongillard

Comments
Powered by Facebook Comments