Sjö lexíur kennarans
eftir John Taylor Gatto
Kennari ársins í New York ríki, árið 1991
Gerðu svo vel að kalla mig herra Gatto. Fyrir tuttugu og sex árum, þegar ég hafði ekkert betra að gera, þá reyndi ég mig við kennslustörf. Leyfisbréfið sem ég hef staðfestir að ég sé kennari í ensku og enskum bókmenntum, en það er alls ekki það sem ég kenni. Ég kenni ekki ensku, ég kenni skóla — og ég fæ viðurkenningu fyrir það.
Kennsla hefur mismunandi merkingu á mismunandi svæðum, en sjö lexíur eru allsstaðar kenndar, frá Harlem til Hollywoodhæða. Þær eru námsefnið um allt land og þú borgar fyrir það á fleiri vegu en þú getur ímyndað þér, svo þú mátt víst alveg eins vita hvað það er. Þér er auðvitað heimilt að hafa þína skoðun á þessum lexíum, en trúðu mér, ég er ekki að reyna að vera kaldhæðinn með þessum skrifum. Þetta eru þær lexíur sem ég kenni, þetta er það sem þú borgar mér fyrir að kenna. Skildu það eins og þú vilt.
1. RUGLINGUR – lesa
2. STÉTTARVITUND – lesa
3. SKEYTINGARLEYSI
Þriðja lexían sem ég kenni börnunum er skeytingarleysi. Ég kenni börnum að láta sér á sama standa um flest en virðast þó áhugasöm. Ég kenni þetta með mjög lúmskum hætti. Ég krefst þess að þau sökkvi sér algerlega niður í kennsluefnið, iði í sætum sínum af eftirvæntingu, keppi kröftuglega sín á milli um hylli mína. Mér hlýnar um hjartarætur þegar þau gera þetta, það hrífur alla, jafnvel mig. Þegar mér tekst best upp, þá skipulegg ég kennslustundirnar afar vandlega til að framkalla þessa eftirvæntingu. En þegar bjallan glymur, þá krefst ég þess að þau hætti hverju því sem þau voru að gera og hraði sér á næstu stöð. Það verður að kvikna og slökkna á þeim eins og með ljósarofa. Ekkert sem skiptir máli er nokkru sinni klárað í mínum kennslustundum, né í nokkrum öðrum kennslustundum sem ég þekki til.
Nemendur fá aldrei heildræna upplifun, nema í greiðsluskilmálunum.
Bjallan kennir einmitt að ekkert verkefni er þess virði að klára það, og því þá að sökkva sér of djúpt í nokkurn hlut? Mörg ár af bjölluhringingum undirbýr alla nema þá sterkustu fyrir heim sem hefur engin mikilvæg verkefni lengur til að leysa. Bjöllur eru hin dulda merking skólatímans, merking þeirra er ósveigjanleg. Bjöllur eyðileggja fortíð og framtíð og gera alla tíma eins, alveg eins og kort sýnir öll fjöll og allar ár eins, jafnvel þó þau séu það ekki. Bjöllur tryggja öllum verkefnum skeytingarleysi.
Mynd CC D Sharon Pruitt

Comments
Powered by Facebook Comments