20 sjóðheitir reitir í Tókíó

Washington bloggar:

Í síðustu viku sagði ég frá því að í Tókíó og nágrannaborginni Yokohama fundust “heitir reitir” með mjög háum gildum geislavirkni, og að allir þessir heitu reitir fundust þegar borgararnir sjálfir voru að mæla umhverfi sitt með geislamælum, því að lítið fór fyrir mælingum yfirvalda.

Sama dag sagði New York Times frá því að “… þessi skiki var einn af 20 í höfuðborginni sem borgarahópar í samstarfi við vísindamenn í virtri kjareðlisvísindastofnun komust að þeirri niðurstöðu að væri hugsanlega svo mengaður af geislavirku cesium að hann gæti skaðað fólk.

Fréttir um að verulegt magn af cesium skuli finnast í þessari þéttni eins langt frá slysstað eins og Tókíó er hefur vakið áhyggjur um hversu langt mengunin hafi borist og hugsanlega sest á svæðum sem stjórnvöld hafa ekki einu sinni íhugað að leita á.

http://www.washingtonsblog.com/2011/10/more-than-20-radioactive-hotspots-found-in-tokyo.html

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments