20 megatonn af áli í andrúmsloftið?

Apavatn, sumar 2008

Það er ekki lengur leyndó að möguleikinn á hnattrænum breytingum af mannavöldum er til staðar.  Hann felst ekki í “losun koltvísýrings”, heldur einhverju mun skuggalegra.  Bókstaflega.  Margir hafa tekið eftir því hvernig þotuslóðir hafa breyst á síðustu 20 árum eða svo.  Margar þessara slóða eru afar seigar og hanga í loftinu tímunum saman, meðan þotuslóðir sem myndaðar eru vegna þéttingar á vatni við þotuúblástur hverfa að jafnaði á nokkrum sekúndum, eða í mesta lagi mínútu eða tveim.

Þessar nýju slóðir eru nefndar “efnaslóðir”, vegna þess að þær virðast hlaðnar efnum sem ekki eiga heima í þotuútblæstri, svo sem áli, baríum og jafnvel einhverjum lífrænum ófögnuði, svo sem sníkjudýrum og sjúkdómavöldum.

Nýlega fór fram ráðstefna um “hnattræna verkfræði” sem nefnist “Asilomar International Conference on Climate Intervention Technologies” eða Alþjóðarástefna Asilomar um tækniúrræði til veðurfarsbreytinga.  Ráðstefnan var hjúpuð leynd en meðal þess sem gestir glöddust yfir er málefnið “stratospheric aerosol geo-engineering – SAG” eða “jarðverkfræði með úðun í heiðhvolið”.  Óbama hefur minnst á SAG aðgerðir sem möguleg úrræði gegn “veðurfarsbreytingum”.  Það er ekki ólíklegt að þegar aðgerðir eins og þessar fara að síast út í fjölmiðla og til almennra vísindamanna og verkfræðinga, þá hafi þær verið í prófunum eða fullri útfærslu í leynilegum NATÓ verkefnum í áraraðir. 

Það er það sem þeir sem hafa séð efnaslóðir árum saman vilja meina, að tilraunir og útfærsla hafi staðið yfir í tugi ára og við séum að súpa seiðið af því í formi aukinna öndunarfærasjúkdóma og annarra sjúkdóma sem tengjast innöndun á áli og baríum ásamt allskyns öðrum óþverra.

Shhh!!!, What If It Was Reported That They Are Spraying Aluminum?

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments