16 ára fangelsi fyrir götuljósmyndun?

Anthony Graber er ökufantur af Guðs náð, hann fer á mótorhjólinu sínu út á hraðbrautirnar og þrumar um á ofsahraða, lætur fákinn prjóna og tekur spretti upp á 200 km / klukkustund.

Þetta tekur hann upp á video með myndavél sem fest er í hjálminn hans.  Hann lenti í því í vor að lögregluforingi trylltist af reiði yfir ökugleði Grabers, elti hann á einkabíl sínum og stöðvaði aksturinn með byssukjafti.

Graber bað mannin að vera rólegan, enda yfirleitt óþarfi að ógna fólki með skotvopnum fyrir hraðakstur.  Við það komst foringinn aftur niður á jörðina, setti byssu í belti og gaf út sektarmiða. 

Þegar Graber kom heim eftir ævintýrið, þá setti hann myndbandið beint á youtube, þar sem það hefur vakið mikla eftirtekt.

En nú ber svo við að lögregluyfirvöld í Maryland urðu hel-ill yfir því að óbreyttur þræll skuli taka myndir af foringjagoðum sínum á opinberum vettvangi og pósta á internetið.  Þau réðust inn á heimili Grabers, leituðu þar og gerðu upptækar fjórar tölvur mannsins.  Graber var handtekinn, ákærður og fangelsaður á grunni laga um hleranir.  Þessum lögum er ætlað að vernda einkasamskipti milli tveggja aðila. 

Davíð Roach, lögmaður mannréttindasamtakanna ACLU sem hefur með mál Grabers að gera segir að “með því að ákæra Graber fyrir að brjóta þessi lög, þá verður að líta svo á að lögregluforingi úti á almennu gatnakerfi, með skjöld sinn og einkennisbúning, að vinna sínu opinberu vinnu við að stöðva einhvern, hafi einhvernvegin rétt á friðhelgi þegar kemur að samtali við ökumanninn.”

Lögreglan er ekki hrifin af notkun almennings á allskyns upptökutækjum sem eru oft innan handar í farsímum eða álíka, og eru oft notuð til að skjala allskyns yfirgang og böðlahátt sem lögreglan í nýrri heimsmynd á að beita.

Sixteen Years in Prison for Videotaping the Police?

Myndband Grabers á Youtube

Nokkur dæmi af svipuðu tagi:

27 ára kona handtekinn fyrir að mynda lögreglu

Ljósmyndari í haldi vegna myndatöku

Washington deild ACLU dæmdar bætur vegna ólögmætrar handtöku ljósmyndara

63 ára minnislaus maður fer í mál við lögreglu vegna notkunar á upptökutæki

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments