14 bilaðar handtökuskipanir

Nú er nánast allt orðið að glæpum í Bandaríkjunum, hér er listi yfir fjórtán fáránlegustu ákærurnar sem fólk fer í fangelsi fyrir.

1 – Gægst í gögn fjölskyldunnar

Maður frá Michigan hefur verið ákærður um stórafbrot og gæti þurft að sitja 5 ár í fangelsi fyrir að lesa tölvupóst konu sinnar

2 – Hundaskítur

29 ára kona úr Queens er marin og blá um allan skrokkinn eftir að vera handjárnuð, handtekin og barin hrottalega af lögreglufulltrúum Nýju Jórvíkur.  Hvað braut hún af sér?  Hún var staðin að því að ná ekki öllum kúknum upp eftir smáhundinn sinn.

3 – Óhlýðni vegna nauðgunar

56 ára gömul kona sem hafði verið nauðgað neitaði flugöryggisliðum TSA um að þreifa á brjóstum sínum, henni var þeytt í gólfið, járnuð og handtekin

4 – Munnsöfnuður

Maður nokkur í Milwaukee var nýlega sektaður um 500 dollara fyrir að bölva og sóta í strætó

5 – Jólaglæpir

Fyrir nokkrum árum var 12 ára drengur í Suður Karólínufylki, handtekinn af lögreglunni fyrir að opna jólagjöf of snemma

6 – Endurvinnsluglæpir

Á sumum svæðum Bandaríkjanna er leti við endurvinnslu orðið að glæp.  Til að mynda hefur Clevelandborg tilkynnt að innihald sorptunna verði tekið út og athugað hvort borgararnir séu að henda því sem á að endurvinna.

7 – Barnaskólakrot

12 ára stelpa frá Queens var handtekin og rekin úr skóla vegna þess að hún krotaði “Lex var hér. 2/1/10″ og svo “Ég elska vini mína, Abby og Faith” á borðið sitt.

8 – Prump

13 ára drengur var handtekinn af lögreglu fyrir að prumpa í kennslustund

9 – Gamaldags landbúnaður

Alríkislögreglan gerði áhlaup á 19. aldar Amish bónda klukkan 5 um morgun vegna þess að hann “tók þátt í milliríkjasölu á hrámjólk”

10 – Nestishnífar

Fyrir nokkrum árum var 10 ára stelpa handtekin og ákærð um stórglæp fyrir að taka með sér lítinn steikarhníf í skólann.  Hún ætlaði að nota hann til að borða hádegismatinn sinn.

11 – Trúboð

18 júní síðastliðinn ákváðu tvö kristin safnaðarbörn að útbýta, með friðsamlegum hætti, útprentun af Jóhannesarguðspjalli á gangstéttinni fyrir utan svæði þar sem íslömsk hátið var haldin í Dearborn, Michigan.  Innan þriggja mínútna höfðu 8 lögregluforingjar umkringt þá og handtekið.

12 – Óheimil björgun

Sjómaðurinn Róbert J. Eldridge fékk 500 dollara sekt fyrir að losa risahveli úr netum sínum og sleppa honum.  Hver var þá glæpurinn?  Jú, hann átti að hringja í yfirvöld og bíða eftir að þau björguðu hvalnum. 

13 – Matarslagur

Einu sinni áttu ólátabelgir von á eftirsetu ef þeir létu undan freistingunni og köstuðu kjötbollum og káli í hin börnin.  En í dag geta þeir átt von á handtöku.  Fyrir um ári voru 25 nemendur á aldrinum 11 til 15 ára í Chicago teknir í gæslu af lögreglunni fyrir aðild að “stóra matarslagsmálinu” í skólamötuneytinu

14 – Léleg lóð

Fyrir nokkrum árum var 70 ára gömul amma járnuð og handtekin fyrir ljóta lóð með brúnum blettum.

Lesið meira og skoðið tengla á fréttir sem tengjast þessum málum:

http://www.infowars.com/almost-everything-is-a-crime-in-america-now-14-of-the-most-ridiculous-things-that-americans-are-being-arrested-for/

Mynd CC Casey Serin
Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments