12 borgarstjórar drepnir í Mexíkó

Lögregla fann lík 15 manna, þar af 14 sem höfðu verið afhöfðaðir, á götu fyrir utan verslunarmiðstöð í ferðamannaborginni Acapulco, Mexíkó.

Handskrifuð skilaboð fylgdu með, undirrituð af  “fólki El Chapo’s” – vísun í Sinaloa glæpasamtökin sem Jóakim “El Chapo” Guzman stýrir.

Skilaboðin benda til þess að mennirnir hafi verið drepnir fyrir að fara inn á nýtt markaðssvæði, og kúga íbúa sem þegar voru í kúgunaráskrift hjá El Chapo.

Á árinu 2008 fundust 12 afhöfðuð lík fyrir utan Merida, höfuðborg Yucatan ríkis.  Auk þess fundust 9 afhöfðaðir menn í höfuðborg Guerrero ríkis, Chilpancingo.

Í það minnsta 30.196 manns hafa látið lífið í tengslum við starfsemi eiturlyfjavíkinga Mexíkó síðan Felipe Calderon sagði þeim stríð á hendur, seint á árinu 2006.  En þessi sami forseti gerðist svo djarfur að segja Bandaríkjamönnum til syndanna fyrir kynþáttafordóma og “illa meðferð” á innflytjendum.  Það má nú kalla að kasta steinum úr glerhúsi.

Yfirvöld segja einnig að borgarstjóri smáborgar hafi fundist drepinn í norður Mexíkó.  Hvarf Saul Vara Rivera, borgarstjóri Zaragoza, var tilkynnt af fjölskyldu hans til lögreglu á miðvikudag.  Sundurskotið lík hans fannst á föstudag í nágrannaríkinu Nuevo Leon.

Á síðasta ári voru í það minnsta tólf borgarstjórar voru drepnir um allt Mexíkó af eiturlyfjavíkingum, til að skapa rétta stemmningu (ótta við víkingana). 

http://www.breitbart.com/article.php?id=D9KKBACO1&show_article=1

Mynd CC olivier brisson

Frelsistilsögn frá einræðisherra

Fleiri afhöfðaðir í Bandaríkjunum

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments

Tags: