
- Sólin skín í gegn um rykið í rústum WTC. Mynd Andrea Booher / FEMA Photo News
11. september 2011
Í dag eru 10 ár frá voðaverkunum þann 11. september 2001, þegar þúsundir létu lífið í atburðarás sem breytti heiminum og steypti vesturlöndum í heimsstyrjöld sem hófst með loftárásum á Afganistan þann 7 október 2001 og ekki sér fyrir endan á.
11. september 2001
Íslensku blöðin voru sennilega flest eða öll komin úr prentun þegar ógæfan dundi yfir, þannig að þau segja frá atburðunum daginn eftir, 12. september 2001.
Þó má finna furðulega tilviljun í Fréttablaðinu 11. september 2001. Annar stríðsbræðranna viljugu, Halldór Ásgrímsson kynnir “tækifæri til að axla ábyrgð,” með því að senda ungt fólk í hernaðarstörf undir yfirskini friðargæslu.
„Við höfum fengið tækifæri til að axla ábyrgð og vera fullgildir þátttakendur til jafns við aðrar þjóðir”, sagði Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, þegar hann kynnti átak utanríkisráðuneytisins til að fá fólk til starfa í íslensku friðargæslunni í gær.
Ný heimsmynd
DV er ábyrgast af þeim blöðum sem hér eru skoðuð, þeir benda ekki fingrum, allavega ekki á forsíðu. En í staðinn kynna þeir nýja heimsmynd.
Hryðjuverkin í Bandaríkjunum í gær eru í raun árás á hið opna vestræna samfélag. Heimsmyndin er breytt. Það hefur verið lýst yfir stríði – árás hefur verið gerð á frelsi og atlaga að undirstöðum lýðræðis, segir í leiðara DV.
Þessi orð lýsa ótrúlegri innsæi, eða líklegra, eru áróðurspunktar sem settir voru fram af stríðsherrunum sem annaðhvort framkvæmdu atburðina, eða skiptu sér ekki af undirbúningi og framkvæmd þeirra þó þeim væri fullljóst hvað var í vændum.
Hvernig er ástandið í dag? Heimsmyndin er breytt. Frelsi og undirstöður lýðræðis eru sífellt undir atlögu frá ríkisstjórnum okkar á vesturlöndum, athugið það, ekki hryðjuverkamönnunum! Heldur ríkisstjórnunum okkar. Það var ekki bin Laden sem fann upp á forvirkum heimildum. Eða neyddi NATÓ (okkur) til að stunda fangaflug og pyndingar. Eða setja yfir 100 ára leynd á sumar aðgerðir ríkisstjórnarinnar okkar.
Árás á hjarta kapitalismans
Guðmundur Franklín Jónsson er verðbréfasali á Manhattan á þessum tíma, hann segir: “Þarna er verið að ráðast að hjarta kapítalismans í heiminum.” Það reyndist jafnvel réttara en það sem virðist á yfirborðinu árás á tákn þessarar hugmyndafræði, því í kjölfarið fylgdi svo taumlaust rugl í efnahagskerfi heimsins sem er að sliga það kerfi sem við höfum búið við og í staðin á að selja okkur sambland af ráðstjórnarbúskap og einkavinavæðingu. Sovét á sterum, “þriðja leiðin.”
Undirbúið af ómennskum skrímslum
Fréttablaðið segir á forsíðu bandarísk stjórnvöld telja “sterkar líkur á að sádiarabíski hryðjuverkamaðurinn Osama bin Laden, sem talið er að dvelji í felum í Afganistan, beri ábyrgð á voðaverkunum.” Á 6. síðu er stutt frétt um Tony Blair, sem hlakkar til þess að pota þjóð sinni í hernað. Kaldhæðnislegt að lesa þetta 10 árum síðar, nú finnst væntanlega flestum að hann sé að tala um sjálfan sig í lok fréttar.
Tony Blair, forsætisráðherra Bretalands, sagði í gær að lýðræðisríki heimsins yrðu að „berjast gegn illsku,” hryðjuverkamanna sem stóðu að baki árásum í Bandaríkjanna í gær. Hann var augljóslega skekinn vegna atburða gærdagsins. Blair, sem boðaði til neyðarfundar hjá ríkisstjórn Bretlands, sagði að slíkar árásir væru „undirbúnar af brjálæðingum sem stæði gjörsamlega á sama um mannslíf.”
Sterkar líkur á að Ósama bin Laden sé ábyrgur
Fréttablaðið segir frá því að “Osama bin Laden hafa varað við árás gegn Bandaríkjunum fyrir þremur vikum.” Það er notað til að byggja áróðursvöndulinn um að bin Laden hafi skipulagt hryðjuverkin. Nú vitum við að bin Laden var dyggur þjónn og verktaki hjá CIA og ef hann hefur varað við atburðunum 11. sept, þá hefur það verið á bókstaflegan máta, hann hefur varað þá sem greiddu honum stórfé fyrir njósnaverkefni við því að eitthvað væri í bígerð.
Leyniþjónustur á vesturlöndum vissu margar tiltölulega mikið um aðgerðina og höfðu einnig varað bandarísk stjórnvöld við yfirvofandi harmleik.
Tímaröð atburðanna
Fréttablaðið birti þessa tímaröð
8:50 Bandarísk farþegaflugvél flaug inn í annan turnanna á World Trade Center. Stórt gat myndaðist á byggingunni og eldur kviknaði. Vélinni hafði verið rænt skömmu eftir flugtak frá Boston, en hún átti að fljúga til Los Angeles. Um borð voru 92 menn.
9:08 Önnur bandarísk farþegaflugvél flaug á hinn turninn og olli gríðarlegri sprengingu. Um borð voru 64 menn, en vélin var á leið frá Washington til Los Angeles.
9:35 Öll umferð um brýr og jarðgöng inn í New York borg var bönnuð.
9:43 Stór flugvél flaug á Pentagon, byggingu bandaríska varnarmálaráðuneytisins í Washington. Að öllum líkindum var um að ræða áætlunarflugvél frá Newark til San Francisco með 65 manns um borð.
9:45 Hvíta húsið í Washington rýmt af fólki.
9:51 Öll flugumferð á öllum flugvöllum í Bandaríkjunum var stöðvuð.
10:05 Syðri turn World Trade Center hrundi til grunna.
10:10 Flugvél bandaríska flugfélagsins United Airlines hrapaði í Pennsylvaníu, suðaustur af Pittsburgh. Um borð voru 45 manns.
10:13 Bygging Sameinuðu þjóðanna í New York var rýmd, en alls voru á tólfta þúsund manns í byggingunni.
10:22 Fólk yfirgefur byggingar tveggja ráðuneyta í Washington, utanríkisráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins.
10:24 Skýrt frá því að öllum flugvélum frá Evrópu til Bandaríkjanna hafi verið beint til Kanada.
10:30 Nyrðri turn World Trade Center hrundi til grunna.
10:45 Allar opinberar stofnanir í Washington voru tæmdar af fólki.
Á blaðsíðu 10 í blaðinu auglýsir utanríkisráðuneytið svo eftir einstaklingum í íslensku friðargæsluna…
Ráðist á ljósvita frelsisins
Morgunblaðið er með tilvitnun í Búsh á forsíðu og notar mikið pláss í að telja upp staðfestar og óstaðfestar tölur um hitt og þetta, hve margir voru í flugvélunum, þetta margar mínútur, 400 metra háir turnar, 757 flugvél, Giuliani borgarstjóri segir “gífurlegur fjöldi fólks”.
Forsetinn ávarpaði bandarísku þjóðina klukkan hálfeitt að íslenskum tíma í nótt og sagði þá að ráðist hefði verið á Bandaríkin vegna þess að þau væru ljósviti frelsisins. „Þúsundum mannslífa hefur verið tortímt með viðurstyggilegum hætti,“ sagði forsetinn. Hann sagði leit hafna að þeim sem ábyrgð bæru á árásinni og tók fram að „enginn greinarmunur [yrði] gerður á hryðjuverkamönnunum og þeim sem [héldu] yfir þeim hlífiskildi“.
Í beinu framhaldi er talað um að enn sé of snemmt að slá því föstu, en samt slá þeir því föstu að bin Laden sé að baki árásinni.
Morgunblaðið var með öflugan tólfblöðung helgaðan umfjöllun um atburðina daginn áður.

Það þarf að gera opinbera rannsókn á atferli ýmissa dýrategunda á Alþingi, í sambandi við þessi hryðjuverk.Hvaða tengsl eru t.d. á milli auglýsingar eftir friðargæsluliðum og árásarinnar? Hvað vissu íslensk stjórnvöld mikið? eru kannski of fáir fyrir landsdómi?
Eigum við kannski að bíða eftir að 4flokknum verði rutt útaf alþingi í næstu kosningum og gera þá kröfu um að þessi mál öll verði rannsökuð almennilega?
Ég er ansi hræddur um að fyrir þeim landsdómi stæði Geir ekki einmana.
Svá góðr
2