Heimskan í íslenskum almenningi er heimsfræg á Íslandi. Því trúin á óspilltasta þjóðfélag heims er enn til staðar. Gott dæmi er Steinun Valdís Óskarsdóttir sem þótti og þykir jafnvel enn vera holdgerfingur dugandi kvenna með óflekkað mannorð. En hvað kom í ljós í skýrslunni góðu? Steinun Valdís hafði fengið hæstu styrkina af öllum pólitísku prumpudýrunum frá stórtækustu bankaræningjum heimssögunnar í sinn vasa. Ég hélt jafnvel í minni barnalegu einlægni að Steinunn væri góða gellan með hjartað úr gulli. En í reynd er hún er bara strengjabrúða í fallegum gjafapappír.
Íslendingar héldu líka, fyrir utan nokkra samsærisrugludalla, að svínaflensan kæmi fljúgandi á ösnum frá Mexíkó og dræpi þá og alveg sérstaklega börnin. Íslenska ríkið og yfirmenn læknastéttarinnar keypti bóluefni fyrir milljónir og náðu að bjarga helming þjóðarinnar frá tortímingu að eigin sögn. Í dag er ljóst að hættan var stórlega ýkt og jafnvel erlendir massamiðlar flytja fréttir af kröfum um rannsókn á ítökum lyfjarisa á WHO og mögulegum hagsmunaárekstrum. En hér á Íslandi syngja synir Göbbels og Haraldur Briem sóttvarnarlæknir sönginn um að bóluefnið sé gott og jafvnel betra en brauð með osti og sultu. Samt dóu fleiri hér á landi miðað við höfðutölu en í Zimbabe, Kúbu og Norður Kóreu til samans.
Í þessum töluðu orðum er verið að koma þjóðinni inn fyrir gullna hliðað í Brussel. Skynsama efasemdafólkinu var seld vegferðin með loforði um einhver samningsmarkmið en lítið hefur farið fyrir þeim. Eftir vikudvöl á Spáni finnst mér að íslenska saminganefndin ætti að setja betra veður efst á listann. Það væri a.m.k eitthvað sem kæmi flestum landsmönnum vel sérstaklega þeim sem ekki hafa lengur efni á innfluttum landbúnaðarvörum eða sólarlandafríi. Ef einhver heldur að gosdrykkir eða safar séu dýrir á Íslandi get ég huggað viðkomandi á því að tveggja lítra kók í stórum supermarkaði á Suður Spáni kostaði bara 312 krónur íslenskar. Góðir golfskór fyrir lélega háforgjafarkylfinga kostuðu litlar 51.000 krónur án afsláttar. Kjúklingar og jarðaber voru þó heldur ódýrari og vöruúrvalið var líka meira. Síðan var venjulegt 700 gr. heilhveitibrauð á tæpar tvöhundruð krónur og kílóið á nýlegum fiski á aðeins 1500-1600 krónur. Ódýrt?
Ef það er eitthvað sem fólk verður að gera þá er það að hugsa sjálft. Láta ekki segja sér hluti heldur kanna þá og komast að eigin niðurstöðu. Þrátt fyrir að margir haldi að matarverð sé ennþá hæst á Íslandi þá tala staðreyndir sínu máli. Verð á Spáni og Íslandi er nefnilega orðið áþekkt í mörgum vöruflokkum. Sama gildir um fullyrðingar sóttvarnarlæknis og yfirlýsingar Steinunar Valdísar um sitt eigið ágæti. Ef fólk hættir ekki að taka mark á öllu án þess að kanna sjálft hvað býr að baki þá er hætt við að 1. apríll verði hlaupinn daglega.

Comments
Powered by Facebook Comments