1.700% aukning í tíðni drómasýki

Mynd PD Kim Newberg
Langtíma afleiðingar svínabólusetningarfársins árið 2009 eru að koma í ljós með aukinni tíðni raskana í ónæmiskerfi hinna bólusettu.
Ný rannsókn sem birtist í Public Library of Science ONE staðfestir enn á ný tengsl bóluefnis Glaxo Smith Kline (GSK), Pandemrix, við svínaflensu og um 1.700 prósent aukningar á tíðni drómasýki hjá börnum undir 17 ára.
Hópur finnskra vísindamanna fann út að tíðni drómasýki hjá finnskum börnum undir 17 ára jókst úr 0,31 tilfelli á hverja 100.000 einstaklinga árið 2002, upp í 5.3 tilfelli á 100.000 einstaklinga árið 2010, 17 föld aukning á tíðni.
Svipaðar niðurstöður fengust í fyrri rannsókn sem stýrt var af Markku Partinen frá Helsinki Sleep Clinic og Hönnu Nohynek frá Heilbrigðis og velferðarstofnun Finnlands, sem bæði tóku einnig þátt í þessari nýju rannsókn.
Í eldri rannsókninni kom í ljós að börn sem ekki voru bólusett með Pandemrix voru 1.300 prósent ólíklegri til að þróa með sér drómasýki en þau bólusettu. Tíðnin er því að aukast, hugsanlega vegna þess að hinir bólusettu veikjast ekki endilega strax eftir bólusetninguna af drómasýki, heldur jafnvel mörgum mánuðum seinna.
http://www.naturalnews.com/035501_vaccines_narcolepsy_children.html
Lyklar:GSK, svínaflensa








