Þýskaland lemur í borðið

Samkvæmt fréttasíðunni Euractiv.com er komin upp deila milli þýsku sambandsríkjanna og yfirstjórnar ESB.  Barroso og stelpurnar hans í framkvæmdastjórninni vilja setja skýr markmið í menntamálum aðildarlanda sambandsins.  Þessu vill þýska sambandsríkið ekki una og þurfti forseti ráðherraráðsins að taka málið af dagskrá næsta fundar.  En því tók Barroso ekki hljóðlega og krefst þess að ESB taki meiri stjórn á menntamálum aðildarríkja til að tryggja að Evrópa verði samkeppnishæf árið 2020, svokallað 2020 markmið.

Með tilkomu Lissbon sáttmálans fær yfirstjórn ESB meira vald yfir einstökum ríkjum og þegnum þeirra.  Partur af þessu valdi er nýtt eftirlitskerfi til að fylgjast með hvernig einstök ríki standi sig í að framfylgja stefnu yfirstjórnar sambandsins.  Hátt settur embættismaður sagði Euractiv.com að nýja eftirlitskerfið hefði vakið undrun hjá mörgum sem ekki hefðu lesið smáa letrið í Lissbon sáttmálanum.  En sú undrun væri ástæðulaus enda hefðu þessir sömu aðilar samþykkt sáttmálann fyrir hönd þjóða sinna og bæru því fulla ábyrgð á gjörðum sínum.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments