Þrír Frakkar brjálast

Þeir voru nú kannski aðeins fleiri eða heil 60 stykki samkvæmt frétt vefritsins Foodfreedom.   En fyrr í þessum mánuði réðst hópur aðgerðasinna á genabreyttan vínvið  í Colmar Frakklandi.  Hópurinn beið í tjöldum rétt hjá ríkisrannsóknarstofunni INRA.  Klukkan fimm um morguninn hélt hersingin af stað og lokaði sig inni með plöntunum.  Síðan reif fólkið plönturnar upp með rótum.

Talsmaður hópsins, Olivier Florant, sagði við Le Figero að tilgangurinn með aðgerðinni væri að mótmæla að sjóðir almennings væru notaðir til að fjármagna svona tilraunir undir beru lofti.  Fyrr á þessu ári eyðilögðu spænskir félagar Frakkanna tilraunaræktun á erfðabreyttu korni.  En með því vildi fólkið mótmæla stefnu stjórnvalda og fjölþjóðlegra eiturefnafyrirtækja s.s. Monsanto án aðkomu almennings.

Þrátt fyrir fögur loforð sölufulltrúa eiturefnafyrirtækjanna þá tapa flestir bændur á erfðabreyttum plöntum.  Því plönturnar mynda ekki fræ sem þarf að kaupa árlega.  Þær þurfta oftast meira vatn en óbreyttar plöntur og meira magn af eitri til að dafna.  Fylgifiskur óhóflegrar eiturúðunar er síðan ónæmt illgresi sem veldur miklum vandræðum.  Allir plúsarnir enda sem mínusar á endanum.

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments