Þríhliða vill ófrið við Íran

Paul Joseph Watson, Prisonplanet Com, 14.5.2010

Mikhail Slobodovsici, meðlimur þríhliðanefndarinnar og aðalráðgjafi rússneskra stjórnvalda gaf óvart upplýsandi innsýn í áform alþjóðaelítunnar á meðan fundi hópsins stóð í Dublin, Írlandi, þegar hann hélt írskan We Are Change aðgerðasinna vera félaga í þríhliðaklíkunni og fór að spjalla við hann um áform alþjóðasinnanna um stríð við Íran.

Samkvæmt hrífandi frásögn Jim Tucker, blaðarefsins gamla um málið, lét Slobodovsici einnig í ljós við aðgerðasinnan Alan Keenan áform um að nýta sér efnahagsólukkuna til að koma nú loks alþjóðaríkisstjórn á koppinn, en sú stefna hefur tafist verulega vegna brölts hinna svokölluðu “þjóðernissinna” sem eru í vaxandi mæli að verða meðvitaðir um skerðandi áhrif alþjóðastjórnarinnar á lifistaðal og frelsi almennings.

“Við ákvörðum framtíð heimsins,” sagði Slobodovsici við Keenan.  “Við þurfum alþjóðleg stjórnvöld,” sagði hann, en um Íran sagði hann “við þurfum að losna við þá.”

Skyndilega tók Slobodovsici eftir því að nafnspjald Keenans var frábrugðið þríhliðanafnspjaldinu og sagði í flýti:  “Ég get ekki talað meira – við vinnum eftir reglum Chatham House”, segir Tucker í grein sinni, en það merkir að tala bara við “innmúraða” og “innvígða”.

Trilateral Commission Wants War With Iran

Related Posts Plugin for WordPress, Blogger...

Comments

Powered by Facebook Comments